Um Torget

Allt sem þú þarft að vita til að kaupa og selja á Torget.

Hvað er Torget?

Torget er íslenskt markaðstorg þar sem þú getur keypt og selt notaðar vörur. Hér getur þú fundið allt frá fatnaði og skóm til húsgagna, raftækja og listaverka. Þú ert í beinu sambandi við kaupendur og seljendur um land allt og gefur hlutunum þínum nýtt líf.

Hvernig sel ég?

Stofnaðu aðgang

Smelltu á „+ Selja“ og skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang. Það kostar ekkert að skrá vöru og seljandi greiðir enga þóknun.

Settu upp auglýsingu

Bættu við myndum, lýsingu, verði og flokki. Því nákvæmari sem þú ert, því meiri líkur eru á að varan þín seljist fljótt.

Kaupandi greiðir í gegnum Torget

Kaupandi kaupir vöruna beint eða gerir tilboð sem þú getur samþykkt. Kaupandinn greiðir Torget og greiðslan er geymd hjá okkur þar til viðskiptum er lokið.

Komdu vörunni til Dropp

Þú sækir sendingarmiðann á Torget og prentar hann út eða skrifar sendingarnúmerið á pakkann. Þú kemur pakkanum til Dropp innan sjö daga frá greiðslu, annars fellur salan niður og kaupandinn fær endurgreitt.

Fáðu greitt fyrir söluna

Geri kaupandinn ekki athugasemd innan 48 klukkustunda frá afhendingu, eða staðfesti fyrr að allt sé í lagi, millifærum við söluverðið á bankareikninginn þinn innan nokkurra virkra daga. Þú færð fullt söluverð.

Hvernig kaupi ég?

Finndu vöruna þína

Notaðu leitina eða flettu í gegnum vöruflokka til að finna það sem þig vantar.

Kauptu eða gerðu tilboð

Kauptu strax á skráðu verði eða sendu seljanda tilboð í skilaboðum. Samþykkt tilboð gildir í 48 klukkustundir.

Greiddu í gegnum Torget

Þú greiðir verð vörunnar, þjónustugjald Torgets og sendingarkostnað með greiðslukorti. Heildarverðið sést áður en þú greiðir.

Sæktu á afhendingarstað Dropp eða fáðu heimsendingu

Seljandi sendir vöruna með Dropp. Þú færð tölvupóst með sendingarnúmeri. Sæktu sendinguna innan sjö daga frá því að hún kemur á afhendingarstað Dropp, annars er hún endursend og þú færð vöruverðið endurgreitt, en hvorki þjónustugjald né sendingarkostnað.

Tilkynntu ef eitthvað er ekki í lagi

Ef varan er ekki í samræmi við lýsingu eða skemmd hefur þú 48 klukkustundir frá afhendingu til að gera athugasemd. Ef seljandi eða Torget samþykkir athugasemdina sendir þú vöruna til baka og Torget borgar sendinguna. Þegar seljandinn hefur fengið vöruna og skoðað hana færðu allt endurgreitt. Segi seljandinn að eitthvað sé að vörunni sker Torget úr. Ekki er hægt að skila vöru vegna þess að þú skiptir um skoðun.

Hvað kostar að selja á Torget?

Seljendur greiða enga þóknun fyrir að setja inn vöru á Torget. Á söluverð vörunnar leggst þjónustugjald Torgets, sem er hlutfall af verði vörunnar, eftir verðbili:

  • Verð 0 – 20.000 kr.: 6% af verði vörunnar
  • Verð 20.001 – 60.000 kr.: 4% af verði vörunnar, þó aldrei lægra en 1.200 kr.
  • Verð 60.001 kr. og yfir: 2,5% af verði vörunnar, þó aldrei lægra en 2.400 kr.

Fast gjald, 149 kr., bætist við hverja pöntun. Breytilegi hlutinn er aldrei hærri en 4.900 kr., þannig að þjónustugjaldið verður mest 5.049 kr. Upphæðin er námunduð að heilli krónu.

Öryggi og traust

Greiðsla kaupanda er geymd hjá Torget þar til varan er komin í hendur kaupanda og frestur til að gera athugasemd við kaupin er liðinn. Haltu viðskiptunum inni á Torget. Þá getum við aðstoðað þig ef eitthvað kemur upp á. Sjá nánar í skilmálunum.

Viltu byrja?

Byrjaðu að selja eða kaupa í dag.

+ Selja vöruSkoða vörur